Leita í fréttum mbl.is
Embla

Að vera kúl... er ekki létt

1 (52) Það eru margir sem "eru" kúlir, þeir klæða sig, standa og horfa á réttan hátt, en síðan opna þeir munninn og kúlið hverfur. Ég á einn bróðir sem er fæddur kúl, ég er viss um það að maður gæti tekið hann úr öllum fötunum, sett hann í gul stígvél og skilið hann eftir niðri miðbæ og hann væri kúlastur í bænum. Ég gæti ábyggilega skrifað um hann endalaust, en ég ætla að taka eitt dæmi sem ég man eftir frá barnæsku...

Við vorum oft í vatnsbyssuleik í hverfinu þar sem við bjuggum. Liðið sem við kepptum við á móti voru með flottar vatnsbyssur, meðan við brekkubúar (við vorum kallaðir það), vorum með frekar hallærislegar byssur, appelsínugular á lit og næstum því alveg kraftlausar. Við vorum þar að auki ekki með helminginn af liði "óvinarins". Við vorum semsagt í vonlausri stöðu.

Í liðinu mínu vorum við bara tveir, svo einn góðan veðurdag spurði litli bróðir minn hvort hann mætti vera með. Hann var bara 7 eða 8 ára, svo ég var ekki alveg sáttur við það að taka hann inn í liðið, en þegar aðstoðarforinginn í liðinu mínu var búinn að tuða í mér í smá tíma, féllst ég á að skrá hann í liðið. Ég skírði það út fyrir ástkæra bróður mínum að hann mundi verða blautur og það að við mundum tapa og það væri ekkert sem við gætum gert í því... Jú, jú, hann sætti sig við það og var hæst ánægður að fá að vera með.

Við hlóðum byssurnar okkar og fórum í stríðsleit, þegar við sáum "óvininn", gerðum við það sem við alltaf gerðum... Snerum við og hlupum eins og skrattinn væri á eftir okkur. Meðan ég var á hlaupum lít ég við, bara til að sjá hversu nálægt Al Grannar voru á eftir okkur, þá sé ég í skelfingu minni að bróðir minn stendur kyrr og er umkringdur af krökkunum. Ég sneri við og hljóp eins hratt og fætur toguðu í átt til hans og meðan ég er á hlaupum heyri ég hvernig krakkarnir hlæja og samtímis sprauta vatni á litla bróðir minn og segja: Við erum búinn að vinna og þú ert búinn að tapa! Bróðir minn stendur í miðjunni, sæll og rólegur, rennandi blautur og sprautar með kraftlausu byssunni sinni á einn og einn í einu og segir samtímis: Nei, ég er ekki búinn að tapa, þið eruð búinn að tapa... ég er með piss í byssunni minni. Ég held að krakkarnir hafi verið sammála því, á meðan þau voru á hlaupum heim.

Eftir þetta pissuðum við alltaf í byssurnar okkar, en stóra vandamálið var bara það að þessi tapsáru krakkar vildu aldrei vera með í byssó.

Næst ætla ég kannski að segja frá því þegar við vorum búnir að vera með snjóboltana í frystikistunni í sólahring...            


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahaha hann ER kúl

Jóna Á. Gísladóttir, 3.10.2009 kl. 01:27

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svakalega kúl

Jónína Dúadóttir, 3.10.2009 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og fimmtán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnar Helgi Eysteinsson
Gunnar Helgi Eysteinsson

Allt um Topplistann. *********** Topplistinn.is ???? Smelltu á myndina! ****************** Hver er Gunnar?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband