26.9.2009 | 22:41
Sökudólgur kreppunar er ....
Ég er að drekka rauðvín og fór að pæla, eða er með smá vangaveltur um fjármálakreppuna á Íslandi.. eða bara almennt um fjármálakreppuna. Þ.e.a.s. hver það er sem er virkilegur sökudólgur kreppunnar?
Það er mjög líklegt að þér finnist þetta vera algjört bull en hvað með það. 
Ég hef komist af þeirri niðurstöðu að sökudólgurinn er engin annar/önnur en Rhonda Byrne.
Rhonda Byrne er höfundur bókarinnar, Leyndarmálið. Bókin sem sló í gegn rétt fyrir hrunið mikla. Ég vill taka það fram að ég hef enga trú á þessari bók en að einhverjum skrítnum ástæðum fékk vínið mig til að hugsa: Ef það er eitthvað til í þessari bók!? (.. og hvað vitum við eiginlega?)
Er þá ekki búið að rugla jafnvæginu alheimsins, þ.e.a.s. fólk sem á nóg óskar eftir meira… og fær það? (Yin og Yang) M.ö.o. er hægt að segja að græðgin hafi ruglað jafnvægi alheimsins ???
Hvað finnst þér um þetta "rugl" mitt?
Er eitthvað til í þessu?
Athugasemd:
= Góð pæling
= Hvað ertu búinn að drekka mikið?
= Ég las bókina og óskaði mér....
= Ég veit ekki hvað ég á að segja.
= Glætan
= Hvaðan kemur þú?
Come on... færðu inn eina athugasemd og þú getur notað "Smile-karlana" hér fyrir ofan, ef þú átt ekki orð. 
|
Ekki séð fyrir enda Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Vefurinn | Aukaflokkar: Trúmál og siðferði, Spaugilegt, Heimspeki | Breytt 28.9.2009 kl. 19:19 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 152
- Sl. sólarhring: 157
- Sl. viku: 454
- Frá upphafi: 18395
Annað
- Innlit í dag: 93
- Innlit sl. viku: 284
- Gestir í dag: 86
- IP-tölur í dag: 83
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínar sögur
- Ég mætti niggara... Ég mætti niggara og varð hræddur
- ítalíuferð 1996 Aldrei dæma bók af kápunni.
- Ég skaut fuglkvikindi... Veiði sagan mín...
- Enginn spegill er betri.. Enginn spegill er betri en gamall vinur.
- Að vera kúl... Að vera kúl... er ekki létt
Sögur
- Steinar, möl og sandur. Heimspeki... þessi virði að lesa.
- Velkomin til Holland Sonur minn er einhverfur. Þessi saga segir svo mikið...
- Bakaðar baunir Fyndin saga
- Gott skap
Tónlist
- Mannakorn - Elska þig
- Nine Million Bicycles Katie Melua - Nine Million Bicycles - Flott lag
- I Cried for you Katie Melua - I Cried for you
- The Closest Thing to Crazy Katie Melua - The Closest Thing to Crazy
- Curly Sue Takida - Curly Sue
- Never been here before Jennifer Brown - Never been here before
Skemmtilegt
- Finndu eina villu... Ég lofa að þú springur úr hlátri þegar þú finnur villuna.
Tölvuleikir
- Bouncing Balls Þetta er skemmtilegi leikurinn á facebook
- Big Truck Þessi er skemmtilegur...
- Big Truck 2 Þetta er líka vanabindandi...
- TU-95 Erfiður en skemmtilegur leikur
- Sim Taxi Þetta er vanabindandi...
- Airport madness 2
- Samarost 1 Mjög skemmtilegur leikur...
Bækur
Ég mæli með...
-

: Stúlkan sem lék sér að eldinum (ISBN: BJ STIEG2)
Bók númer 2 - Frábær bók!!!
-

: Furðuflug (ISBN: 997980226x)
Ég las þessa einu sinni á leiðinni til Íslands.
-

: Frjáls (ISBN: hBJ VERAHAL)
Stórbrotin saga hugrakkar konu. Þú verður að lesa þessa.
-

: Karlar sem hata konur (ISBN: BJ STIEG)
Þetta er fyrsta bókin af þrem. Þar sem bók númer 2 er 5 stjörnubók fær þessi 4 stjörnur.



Athugasemdir
Ég er nú bara að drekka brugg (hef ekki efni á öðru )
Hvað voru þeir rugludallarnir Indriði Þorláksson og Svavar Gestsson að semja um á sínum tíma?
Axel (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 23:31
Ég var nú bara að vekja athygli á mestu rugludallakóngum Íslands.
























Axel (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 23:37
Þú ruglar mig í ríminu, Axel
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.9.2009 kl. 23:41
Og svo er það Skattagrímur Sigfússon og Slowhanna Sigurðardóttir guð hjálpi þjóð vorri.
axel (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 23:46
Aðalbjörg Tryggvadóttir, 26.9.2009 kl. 23:47
Axel: Já, Guð hjálpi þjóð vorri.
Aðalbjörg: Alltaf gaman að pæla...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.9.2009 kl. 23:57
Meðal þeirra sem hafa í grundvallaratriðum neikvæða sýn á stjórnmálum er hugmyndin um að þau ráðist af blekkingum og klækjum fyrirferðamikil. Samsæriskenningar eru þær kenningar nefndar sem telja mikilvæga pólitíska viðburði ráðast með leynilegum hætti. Þær er til í ýmsum útgáfum. Sumar halda því fram að stjórnmálabaráttan sé frasi vegna þess að á bak við leiktjöldin sitji hinir raunverulegu valdhafar með alla þræði í sínum höndum. ,, Við búum við nokkrs konar auðmagnssósíalisma, stjórnarfyrirkomulag þar sem pólitíkusarnir dingla í spottum auðmannanna. segir til dæmis Jóhannes Björn Lúðvíksson ( 1979) í bók sinni falið vald. Og hann heldur áfram: ,, þar lengst til hægri er alræði stjórnvalda og lengst til vinstri er alræði stjórnvalda. Allt þar á milli er aðeins mismunandi alræði stjórnvalda. Baráttan á milli þessara tveggja póla er skopleikur.
Kristján Loftur Bjarnason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 01:28
Sæmundur Bjarnason, 27.9.2009 kl. 01:59
"The Secret of Kaupthinking?"
Guðmundur Ásgeirsson, 27.9.2009 kl. 02:03
Úldinn (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 02:52
Öndin trítilóða (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 07:56
Kristján Loftur: Mjög áhugaverð athugasemd...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 09:32
Sæmundur: Takk fyrir að benda mér á þetta
Guðmundur:
Úldinn:
Öndin:
???
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 09:35
Það er bara gerinilegt að þeir sem stjórna í þessu landi hafi aldrei opnað bók um íslenskt líðræði heldur hafi þeir sest niður og horft á gallaðar heimildarmyndir sem einga þíðingu hefur
Kristján Loftur Bjarnason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 12:03
Mér finnst þetta góð pæling hjá þér og alls ekki út í hött. Hlustaði á Secret einu sinni og fannst það lélegt sölu trikk, þannig var góðærið líka.
Asdis Sig, 27.9.2009 kl. 12:56
Kristján: Ég get ekki sagt neitt um það...
Asdis: Ég er sammála um að þetta hafi verið "lélegt sölutrikk" ... en þannig var góðærið (Góður punktur hjá þér)
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 13:23
Ekki svo vitlaus hugmynd hjá þér.. :)
DoctorE (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 13:59
DoktorE: Takk fyrir það
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 14:46
Birna Dúadóttir, 27.9.2009 kl. 16:10
Birna: Takk
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 16:13
Ég þekki ekki þessa bók, hef aldrei nennt að lesa svona sjálfshjálparbækur, það er kannski þessvegna sem ég missti af hinu íslenska góðæri.
En hinsvegar fékk ég einusinni óvæntan póst (e-mail), frá einum fræknasta frjálshyggjufýr Íslandssögunnar, HHG, þar sem hann var að gefa fyriskipun um hvernig flokksfélagar Sjálfstæðisflokksins ættu að svara fyrir orð þáverandi formanns síns DO, þetta var í kringum bolludaginn fræga. -
Ég var svo hissa að mér skildi berast þetta bréf að ég eyddi því þegar ég og vinnufélagar mínir vorum búnir að lesa það, og undra okkur á því, og afhverju ég hefði fengið þetta bréf. Þar sem ég hef aldrei verið í Sjálfstæðisflokknum.
En semsagt þennan dag, fyrir þetta mörgum árum varð mér ljóst að, - "öll atburðarás sem frá Sjálfstæðisflokknum kom var hönnuð, og líka þau svör sem hinn venjulegi flokksmaður átti að svara væri hann spurður".
Þessvegna bloggaði ég í júlí í fyrra um væntanlegt efnahagshrun íslensku bankanna, og þær afleiðingar sem nú eru að koma í ljós. Að Ísland var þá orðið gjaldþrota og bankarnir þurrausnir, og búið að veðsetja lan og þjóð meira en 12x þjóðarframleiðslu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.9.2009 kl. 17:18
Afsakaðu Gunnar en þarna í neðstu línu á að standa eftirfarandi: Að Ísland var þá orðið gjaldþrota, bankarnir þurrausnir, ...... og búið að veðsetja land og þjóð fyrir meira en tólffalda, 12x þjóðarframreiðslu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.9.2009 kl. 17:26
Lilja: Takk fyrir áhugaverða athugasemd. - Ertu með slóð á færsluna? Það væri gaman að lesa hana.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 17:27
Lilja: Ég skildi alveg hvað þú varst að meina...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.9.2009 kl. 17:29
Er ekki að drekka rauðvín - en er að tyggja nikótíntyggjó.
Kama Sutra, 28.9.2009 kl. 02:26
Kama*: lol
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 08:11
Birna Dis Vilbertsdóttir, 28.9.2009 kl. 10:21
Birna:
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 10:37
Knús knús og ljúfar kveðjur......
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.9.2009 kl. 11:48
Linda:
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 11:51
Fyrir þá sem þekkja ekki "The secret"
http://www.youtube.com/watch?v=usbNJMUZSwo
Enn ein geðveikis hjátrúin seld á skrilljónir :)
Usss ekki segja mbl að ég hafi sagt þetta geðveika hjátrú ;)
DoctorE (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 12:15
Flott færsla! Hvað heitir þetta rauðvín???
Ef "Secret" er ekki byggt á glerhörðum sannleika, þá trúi ég ekki heldur "Lord of The Rings"...líklegast tóm lýgi alltsaman líka ...
Óskar Arnórsson, 28.9.2009 kl. 14:54
DoktorE: Þetta var skemmtilegt vídeó... Ég segi engum neitt
Óskar: Rauðvínið heitir Capitel de'Roari - Amarone
HVAÐ, er ekki Hringadróttinssaga ekki sönn ????
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 15:21
Það hlítur bara einhver að hafa óskað sér þess að ísland færi á hausinn með skelfilegum afleiðingum fyrir efnahagslíf. Spurningin er hver það hafi verið ? .... Well..... Lemans brothers fóru á hausinn- það er staðreynd- Íslenska bankakerfið var of stórt- það er staðreynd- Bankarnir voru ríkisvædir- það er staðreynd. - Það var ekki hlustað á okkar helstu sérfræðinga eins og t.d Þorvald Gylfason- Það er staðreynd. Bankarnir hérlendis voru einkavæddi fyrir ekki neitt. það er staðreynd. Nánast hver einasti maður sem kom nálægt þessu hruni var sjálfstæðismaður. Það er staðreynd.
Þannig að það er bókað mál að þessi kreppa hefur verið ver SJÁLFSTÆÐISFLOKKNUM að kenna og engum öðrum að grunni til. Davíði oddssyni og öllum sjálfskipuðu bisnesjöllunum eins eins og Jóni ásgeiri og Hreiðari má sigurðssyni sem hvu víst vera fyrverandi formaður sus.
Brynjar Jóhannsson, 28.9.2009 kl. 18:52
Brynjar: Og svo kenni ég Rhonda Byrne um allt saman
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 18:54
Ég sem hefði getað svarið að Harrý Potter ætti einhverja sök á þessu. Svona getur maður nú verið glámskyggn stundum...
Kama Sutra, 28.9.2009 kl. 19:14
Kama: Tvö glös í viðbót og ég hefði verið sammála þér.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2009 kl. 19:17
Kama Sutra, 28.9.2009 kl. 19:19
Jóhanna Magnúsdóttir, 28.9.2009 kl. 21:06
Jóhanna:
Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.9.2009 kl. 04:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning