Leita í fréttum mbl.is
Embla

Bakaðar baunir.

Dag einn hitti ég yndislega stúlku og við urðum ástfangin.

Þegar það varð ljóst að við myndum giftast ákvað ég að fórna því sem ég hafði mikið dálæti á.  Ég hætti að borða bakaðar baunir.

Einhverjum mánuðum seinna, á afmælisdaginn minn, og ég var að fara heim frá vinnu, bilaði bíllinn minn. Þar sem ég bjó út í sveit hringdi ég í konuna mína og sagði henni að ég kæmi seint þar sem ég þyrfti að ganga heim.

Á leið minni heim gekk ég fram hjá litlu veitingahúsi og lyktin af bökuðum baunum var meiri en ég gat staðist. Þar sem ég átti eftir að ganga nokkra kílómetra áður en ég næði heim reiknaði ég það út að ég myndi ganga af mér þá kvilla sem fylgdu því að borða bakaðar baunir áður en ég kæmi heim.  Svo ég stoppaði á veitingahúsinu og áður en ég vissi af hafði ég klárað þrjá stóra skammta af bökuðum baunum.

Alla leiðina heim fullvissaði ég mig um að ég hefði losað mig við allt gas sem fylgir slíkri græðgi.

Þegar heim var komið tók konan mín spennt á móti mér og sagði: "Ástin mín!  Ég ætla að koma þér á óvart við kvöldverðarborðið." Hún batt síðan slæðu fyrir augun á mér og leiddi mig að stól við borðið. Ég fékk mér sæti og rétt í því sem hún ætlar að leysa frá augunum á mér, hringdi síminn. Hún lét mig lofa því að ég myndi ekki kíkja fyrr en hún hefði afgreitt símtalið og svo fór hún til þess að svara í símann.

Bökuðu baunirnar sem ég hafði innbyrt voru ennþá að hafa áhrif á mig og þrýstingurinn var að verða óbærilegur.  Svo að á meðan eiginkonan var í öðru herbergi notaði ég tækifærið, lét allan þunga minn hvíla á annarri rasskinninni  og hleypti einu skoti út. Það var ekki eingöngu hátt heldur lyktaði það eins og gúanóverksmiðja.

Ég tók servíettuna úr kjöltu mér og notaði hana sem viftu.

Svo lyfti ég mér upp á hina kinnina og skaut þremur í viðbót. Lyktin var verri en af soðnu káli.

Þessu hélt ég áfram í fimm mínútur í viðbót á meðan ég hlustaði gaumgæfilega á samræðurnar sem fram fóru í hinu herberginu. Ánægjan var ólýsanleg eða þar til kveðjuorðin í hinu herberginu bundu enda á þetta frelsi mitt.  Ég loftaði í flýti í kringum mig með servíettunni, lagði hana síðan í kjöltu mér og kom höndunum fyrir ofan á henni og hugsaði um hversu vel mér liði og hversu ánægður ég var með mig.

Andlit mitt hlýtur að hafa sýnt mynd sakleysis þegar eiginkonan mín kom aftur og baðst afsökunnar á því að hafa verið svona lengi í símanum. Hún spurði mig hvort ég hefði nokkuð svindlað og kíkt en ég fullvissaði hana um að það hefði ég ekki gert.

Þegar hér var komið sögu tók hún slæðuna frá augum mér og tólf kvöldverðargestir sem sátu í kringum borðið hrópuðu: "Til hamingju með afmælið!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir

hahahahahah xD

Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir, 19.9.2009 kl. 10:49

2 identicon

Ha ha ha ha.....gód saga...thví ég bjóst vid ad hún hefdi eldad baunarétt handa thér.  Hvar í fjandanum stalstu thessari sögu?

Groddi (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 23:03

3 Smámynd: Guðríður Bjarney Kristinsdóttir

Hahahahah hélt það sama og Hólmfríður

Guðríður Bjarney Kristinsdóttir, 20.9.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og núlli?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnar Helgi Eysteinsson
Gunnar Helgi Eysteinsson

Allt um Topplistann. *********** Topplistinn.is ???? Smelltu á myndina! ****************** Hver er Gunnar?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband