15.11.2011 | 18:05
Við eigum einn Tinna...
Þetta hefur ekkert með íslenskar fréttir að gera... en er ekki Helgi Seljan smá líkur Tinna? Hvar er Tobbi???
|
Bíóaðsókn helgarinnar: Tinni Spielbergs enn á toppnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2011 | 15:26
Topplistinn Kynnir Vefsíðu...
Topplistinn er vefsíðumiðstöð þar sem allir geta skráð heimasíðuna, bloggið o.s.frv. að kostnaðarlausu. Þeir sem eru með tengill og ná að lokka inn flesta gesti yfir daginn þrjá daga í röð fá auglýsingu á Topp 3 (Smelltu á myndina til að skoða)
Toppmeðlimur listann akkúrat núna er Deildu.net. "Deildu.net er p2p síða á vegi íslenskra aðila."
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2011 | 22:35
Ég bara verð...
Þeir eru með góðan húmor á Mbl.
Þótt að þessi frétt sé hálf ógeðsleg, gat ég ekki annað en hlegið af myndinni, sem búið er að velja við þessa frétt...
það er eins og geitin sé í skýjunum og njóti einhvers, og það er líka eins og sé búið að klippa út úr hluta af myndinni. 
Ég sé kannski eitthvað meira út úr þessari mynd en maður á að sjá... 
|
Reyna að banna kynmök manna við dýr |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2011 | 09:53
Ókeypis er gagnlaust... eða?
Fyrir nokkrum árum síðan datt mér í hug að gera íslenska leitarstöð, svipað og Leit.is. Mig langaði að gera vefsíðumiðstöð fyrir íslenskar vefsíður þar sem allir gætu verið með að kostnaðarlausu, en ég sá ekki tilganginn með síðunni á Íslandi akkúrat þá, svo ég hélt áfram að láta mig dreyma.
Það sem ég hugsaði þá var einfaldlega: "Allir eru að gera það gott á Íslandi, það er engin markaður fyrir þjónustu sem er gjaldfrjáls."
Síðan skall kreppan á og ég hugsaði: "Ég er með hugdettu um ókeypis þjónustu sem annars kostar heilan helling (39,900 á ári), ég bara verð að koma þessu á framfæri." Ég gat ekki ímyndað mér annað að þetta myndi ekki slá í gegn... það eru liðin tvö ár og það skeður ekki mikið.
Ég er ekki ennþá búinn að gefast upp, en það kemur af því. Ég er búinn að eyða óteljandi tímum í að byggja upp þjónustu sem gagnar íslenskum vefsíðueigendum, kaupa auglýsingar, halda 10.000 kr. keppni á facebook og 15.000 kr. leik á topplistanum, bjóða mína aðstoð að kostnaðarlausu (Geri t.d. myndborða fyrir alla meðlimi að kostnaðarlausu)...og áhuginn er næst um því, Núll ?
Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er að gera eitthvað vitlaust. En stóra spurningin er HVAÐ ER ÉG AÐ GERA RANGT?
Það sem ég geri mér grein fyrir er að það er lítið gagn af leitarstöð /miðstöð með nokkrum einstökum vefsíðum, en það er 100% ókeypis og kröfulaust að skrá sig á vefsíðulistann. Það er einfalt að skrá heimasíðuna, bloggið, flickr og myspace síðuna á listann og ef maður þarf hjálp, þá aðstoðar umsjónarmaður listans fólk að kostnaðarlausu....
Ég sendi svona "neyðarkall" fyrir ári síðan og fékk góð ráð sem hjálpaði heilmikið. Því langar mig að kalla á hjálp enn eina ferðina.
Ég geri mér grein fyrir því að ég er heimablindur og þess vegna væri gott að fá hjálp.
Spurninginn er:
- Hvað er ég að gera vitlaust?
- Hvað get ég gert betur?
- Hvar er best að auglýsa, ódýrt?
- Hvað þarf maður að gera til þess að komast í viðtalsþátt?

Ef þú hefur ekkert svar - Þá máttu alveg benda vinum þínum á facbook á þessa færslu með því að smella á Facebook takkann, þ.e.a.s. eftir að þú ert búin að smella á Like takkann 
Vefsíðan sem talað er um er þessi: Topplistinn.is
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2011 | 15:46
Halldór Jónsson í fréttum...
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Mínar sögur
- Ég mætti niggara... Ég mætti niggara og varð hræddur
- ítalíuferð 1996 Aldrei dæma bók af kápunni.
- Ég skaut fuglkvikindi... Veiði sagan mín...
- Enginn spegill er betri.. Enginn spegill er betri en gamall vinur.
- Að vera kúl... Að vera kúl... er ekki létt
Sögur
- Steinar, möl og sandur. Heimspeki... þessi virði að lesa.
- Velkomin til Holland Sonur minn er einhverfur. Þessi saga segir svo mikið...
- Bakaðar baunir Fyndin saga
- Gott skap
Tónlist
- Mannakorn - Elska þig
- Nine Million Bicycles Katie Melua - Nine Million Bicycles - Flott lag
- I Cried for you Katie Melua - I Cried for you
- The Closest Thing to Crazy Katie Melua - The Closest Thing to Crazy
- Curly Sue Takida - Curly Sue
- Never been here before Jennifer Brown - Never been here before
Skemmtilegt
- Finndu eina villu... Ég lofa að þú springur úr hlátri þegar þú finnur villuna.
Bækur
Ég mæli með...
-

: Stúlkan sem lék sér að eldinum (ISBN: BJ STIEG2)
Bók númer 2 - Frábær bók!!!
-

: Furðuflug (ISBN: 997980226x)
Ég las þessa einu sinni á leiðinni til Íslands.
-

: Frjáls (ISBN: hBJ VERAHAL)
Stórbrotin saga hugrakkar konu. Þú verður að lesa þessa.
-

: Karlar sem hata konur (ISBN: BJ STIEG)
Þetta er fyrsta bókin af þrem. Þar sem bók númer 2 er 5 stjörnubók fær þessi 4 stjörnur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 26592
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






